Birgir Snæbjörn Birgisson, (f. 1966), ólst upp á Akureyri og stundaði nám við Menntaskólann á Akureyri, Myndlistaskólann á Akureyri, Myndlista- og Handíðaskóla Íslands auk framhaldsnáms í École des Arts Décoratifs, í Strasbourg, í Frakklandi. Birgir bjó og starfaði um tíma í London, Englandi, en hefur um árabil búið og starfað í Reykjavík. Verk Birgis er að finna í safneignum fjölmargra safna og hafa verk hans verið sýnd víða bæði hér heima og erlendis. Skemmst er að minnast stórrar einkasýningar Birgis, Í hálfum hljóðum, í Listasafni Íslands árið 2022. Birgir hefur verið virkur sýningarstjóri í innlendum sem erlendum sýningum. Hann hefur komið að og ritstýrt fjölmörgum útgáfum í tengslum við myndlist. Birgir gegnir um þessar mundir varaformennsku í Myndlistarráði (2025–2028). Birgir Snæbjörn er annar tveggja eiganda og sýningarstjóra Gallerís Skiltis.
Í verkum Birgis tvinnast innihald og form saman, bjóða hvort öðru birginn og stangast á svo úr verður eitthvað alveg einstakt, eitthvað óvænt, enn ekki fyrirséð. Það er hér sem málverkið og pólitísk, samfélagsleg og söguleg málefni mætast, bæði í blíðuhótum og þrætum. Málverk sem virðast hafa sakleysislegt yfirbragð en vinna á og ná að tefla saman meintum andstæðum, sameina fegurð og hrottaskap, og hrista upp í okkur og ögra en jafnframt næra okkur, ja, kannski ekki á visku en aðferðum til að vera og eiga okkur tilvist í veröldinni, bæði ein með sjálfum okkur og saman – með öllum þeim átökum og andstæðum sem tilheyra, en einnig ánægjuefnum og ítarlegum frásögnum. Þessi verk eru gerð af snilldarlegum léttleika, rétt eins og liturinn sé í þann veginn að dofna alveg, hverfa, en þó öðlast þau skriðþunga eftir því sem maður kemur nær þeim, og því lengur sem maður dvelur í návist þeirra.
Vefsíða: birgirsnaebjorn.com / instagram: birgirsnaebjorn / instagram: galleryskilti